Fyrir morgna sem mega taka aðeins lengri tíma.
Fyrsti kaffibollinn. Nokkrar mínútur þar sem ekkert liggur á.
Vefðu Kósí sloppnum utan um þig og njóttu stundarinnar aðeins lengur. Einstaklega mjúkur, léttur og þægilegur.
Mýkt sem þú finnur strax. Og verður bara betri.
Kósí sloppurinn er úr 100% lífrænni tyrkneskri bómull. Áferðin er mjúk og kósí.
Með hverri notkun verður efnið enn mýkra. Þannig hann verður enn notalegri með tímanum.
Gerðu þig til eftir sturtu án þess að svitna
Margir sloppar eru alltof hlýjir til að blása hárið og slétta eftir sturtu.
Á leiðinni út í heita pottinn. Yfir náttfötin á rólegu kvöldi. Eða uppi í hreinu rúmi á sunnudagsmorgni með engin plön.
Vandað val, alveg niður í garnið.
Þegar þú velur slopp sem þú ætlar að nota aftur og aftur er gott að vita úr hverju hann er gerður.
Kósí Muslin sloppurinn er framleiddur í Tyrklandi úr 100% lífrænni tyrkneskri bómull, hjá GOTS-vottuðum framleiðanda.
Garnið sem notað er í sloppinn er GOTS-vottað og sloppurinn er einnig OEKO-TEX® vottaður.
Mjúkt, fallegt efni með skýrum upplýsingum um uppruna og vottanir.
Gott að vita áður en þú velur.
Af hverju að velja muslin-slopp?
Af hverju að velja muslin-slopp?
Muslin-efnið er mjúkt, létt og loftgott, með fallegri, afslappaðri áferð. Góður kostur fyrir þig sem vilt þægilegan slopp sem er notalegt að hafa á sér lengur.
Er hann bara ætlaður til að fara í eftir sturtu?
Er hann bara ætlaður til að fara í eftir sturtu?
Þú átt eftir að finna fleiri tilefni. Við morgunkaffið, á meðan þú gerir þig til, á leiðinni út í heita pottinn eða yfir náttfötin á rólegu kvöldi.
Verður efnið mýkra með tímanum?
Verður efnið mýkra með tímanum?
Já, muslin-efnið verður oft enn mýkra við notkun. Sloppurinn er því mjúkur frá fyrsta degi og verður bara notalegri eftir því sem þú notar hann meira.
Hvað er sérstakt við bómullina?
Hvað er sérstakt við bómullina?
Sloppurinn er úr 100% lífrænni tyrkneskri bómull. Garnið er GOTS-vottað og sloppurinn OEKO-TEX® vottaður, auk þess sem hann er framleiddur hjá GOTS-vottuðum framleiðanda.
Hentar sloppurinn sem gjöf?
Hentar sloppurinn sem gjöf?
Mjúkur sloppur er falleg leið til að gefa einhverjum fleiri kósí stundir. Fyrir afmæli, jólin eða einfaldlega til að gleðja einhvern sem þér þykir vænt um.